Leita í fréttum mbl.is

Ekki þverfótað fyrir mér

„Það er ekki þverfótað fyrir þér! Alveg sama hvar maður ber niður þá ert þú að glenna andlitið á þér í blöðunum,“ sagði vinkona mín við mig í morgun þegar við hittumst í vikulegu tippkaffi í Smáranum.

Sennilega er þetta ein viðburðarmesta vika sem ég man eftir. Um síðustu helgi fóru menn að gantast og sumir hnýta í mig ýmsu ósmekklegu vegna misferlis með kreditkort í eigu KSÍ, þar sem ég sit í stjórn. Ég tók þessu vel fyrst um sinn en viðurkenni þó að mér var farið að leiðast þófið um miðja vikuna. Blaðamenn tóku að hringja í mig strax á mánudag en þó það bullsyði á mér vegna þessa máls þá ákvað ég að sitja á mér eins lengi og mér var unnt. Sú stífla gaf sig á þriðjudagskvöld og birtist viðtal við mig vegna þessa máls á miðvikudag. Á fimmtudag var enn hringt og mér att á svaðið og viðtal birtist á vefnum.

Á föstudag kom út hið ágæta blað, Kópavogsblaðið, þar sem ég rakti æskuminningar úr Kópavogi. Grein sem ég skilaði til blaðsins fyrir góðum mánuði síðan og í morgun var búið að bera út Kópavog, blað Samfylkingarinnar þar sem ég skrifa tvær greinar. Annars vegar um sameiningu sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu og hins vegar um íþóttabandalag í Kópavogi. Síðari greinin fjallar um mikið baráttumál vinar míns og félaga í Breiðabliki Guðmundar Benediktssonar. 

Næsta færsla mín hér á blogginu verður tileinkuð honum, minningu hans og þessu baráttumáli sem við deildum, en Guðmundur lést sl. sunnudagsmorgun.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband