Leita í fréttum mbl.is

Síðasti besti kossinn

Arinbjörn Sigurðsson, skipstjóri og frændi minn, lést í gærkvöldi, laugardaginn 10. október 2009. Addi frændi, eins og við nefndum hann jafnan, var eini albróðir mömmu minnar og sá sem ég hélt mest uppá sem barn og unglingur. Hann var svo yndislegur maður, hlýr og góður. Á þessari stundu leitar hugurinn til þess tíma sem við krakkarnir fórum með mömmu og pabba vestur á Seltjarnarnes til að heimsækja Adda og Lilju. Addi tók okkur alltaf opnum örmum, kallaði á okkur og bað um "besta kossinn". Undantekningarlaust hlupum við systurnar í faðm hans og kysstum hann með okkar "besta kossi" á kinnina og hann brosti til okkar, allan hringinn.

Addi var fengsæll skipstjóri, ég fylgdist spennt með skipafréttum og heyrði af hverri stórsölunni hjá honum í Kúxhafen, Húll og Grímsbý. Ég var svo ákaflega stolt af því að eiga svona flottan frænda sem var ekki aðeins harðduglegur heldur færði hann tekjur í þjóðarbúið og af honum voru fluttar fréttir í útvarpinu.

Addi var aldrei nefndur á nafn öðruvísi en að skeyta "og Lilja" aftan við. Lilja var hans stoð og stytta. Það var ekki alltaf létt að vera ein heima með börnin þegar eiginmaðurinn sigldi um heimsins höf. Eftirá að hyggja held ég hún hafi stundum tekið andköf þegar allur barnaskarinn hennar mömmu ruddist innúr dyrunum en alltaf tók hún okkur fagnandi þó ekki hafi hún fengið eins góða kossa frá okkur og Addi frændi fékk.

Síðast þegar ég sá Adda frænda var hann á spítala helsjúkur af því meini sem síðar dró hann til dauða. Þar sem ég sá hann liggja í rúminu gekk ég til hans og kyssti hann mínum allra besta kossi á kinnina. Hann var bara nokkuð hress og vildi endilega að mamma aðstoðaði hann við að borða eftirréttinn sem í boði var á spítalanum. Það var falleg sjón að sjá þau systkinin þarna saman. Mamma að mata veikan bróður sinn og hann leit á mig með glettnisglampa í augum þegar hún stakk uppí hann bleikum búðingi. Hann sagði líka að nú væri komið að henni að greiða til baka þau skipti sem hann mataði hana þegar hún var lítil stúlka.

Mömmu þótti undurvænt um Adda bróður sinn og nú er hún ein eftir af þeim systkinum öllum Addi, Ulla, Siggi, Helga og Sjana hafa öll kvatt þetta jarðlíf. Þau voru samrýmdur og sterkur systkinahópur og það voru forréttindi að fæðast inní svona góðan hóp. Fyrir það þakka ég, í hjarta mér er gleði yfir því að hafa átt svona flottan frænda og í kveðjuskyni sendi ég honum minn allra besta koss.

Hvíldu í friði kæri frændi.

Farðu í friði

Við fæðumst til að ferðast meira,
fæðing dauði er ferðalag.
Margra bíður sultur seyra
en sumum gengur allt í hag.

Öll við fáum okkar kvóta
af meðlæti og mótlæti.
Flest við munum einnig hljóta
okkar skerf af ástinni.

Farðu í friði góði vinur
Þér fylgir hugsun góð og hlý.
Sama hvað á okkur dynur
aftur hittumst við á ný.

Úr hjarta mínu hverfur treginn
er ég hugsa um hlátur þinn.
Bros þitt veitti birtu á veginn
betri um stund varð heimurinn.

Farðu í friði góði vinur
Þér fylgir hugsun góð og hlý.
Þar til heimsins þungi dynur
þokar okkur heim á ný.

Sólin skín á sund og voga
sumar komið enn á ný.
Horfið burt í bláum loga
stjörnublik á bak við ský.

Lag og texti: Magnús Eiríksson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl Ingibjörg! Ég vil votta þér mína dýpstu samúð. Arinbjörn var mjög þekktur sem togaraskipstjóri af kynslóð okkar togaramanna sem nú er að kveðja. Fyrst kenndur við sitt 1sta skip sem skipstjóri b/v Ask, Síðan var það Arinbjörn á Sigurði svo b/v Elín Þorbjarnardóttir og síðast Engey. Arinbjörn var dáður um flotann fyrir aflasæld og frábæran stjórnunarhæfileika. Minningin um góðan dreng lifir.Blessuð sé minning Arinbjarnar Sigurðssonar. Sértu sjálf kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 11.10.2009 kl. 19:35

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæll Ólafur, þakka þér hlýjar kveðjur.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 11.10.2009 kl. 20:28

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Já, ég var heima hjá móður minni Viktoríu Skúladóttur, sem var gift föður mínum Guðbirni Jenssyni, sem dó fyrir 30 árum síðan. Þá sagði hún mér einmitt frá því að Addi væri dáinn og ég fann að þegar hún talaði um hann og Lilju var mikil hlýja og velvilji í rödd hennar.

Ef ég man rétt var ég sem lítill krakki í smá tíma í fóstri hjá Adda og Lilju og ég man að það batt mig þeim traustari böndum en marga aðra skipstjóra, stýrimenn og vélstjóra, sem pabbi þekkti og umgekkst á þessum árum.

Ég bið að heilsa Lilju og börnunum og votta þeim samúð mína. Addi var mikill sómamaður og ekkert ofsagt í þessum fallegu orðum þínum! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 11.10.2009 kl. 23:55

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæll Guðbjörn, ég skila kveðju til þeirra.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 16.10.2009 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband