Leita í fréttum mbl.is

Stórkostleg upplifun

Á dögunum fór ég ásamt föngulegum hópi systra og vinkvenna til Finnlands. Markmiðið var að leggja Norðmenn og Frakka að velli í úrslitakeppni EM í knattspyrnu. Hafi það farið framhjá nokkrum þá tókst ætlunarverk okkar heldur betur og ekki bara það heldur lagði liðið mitt Þjóðverja einnig að velli þó systrahópurinn væri horfinn heim til Íslands á nýjan leik.

Nei ég er ekki með rugluna, ég tilheyrði hópi nokkurra tuga stuðningsmanna sem fylgdi íslenska kvennalandsliðinu til Finnlands og á pöllunum rúlluðum við upp Evrópumótinu svo eftir var tekið. Stemmingin á pöllunum var engu lík. Hljómsveitin Hjaltalín sló taktinn og við léðum raddir okkar og lungu í verkefnið og slógum hvergi af. Áfram Ísland hljómaði um leikvöllinn án mikilla hléa í rúmar 90 mínútur en þegar hvatningarhrópunum linnti var gripið til ættjarðarlaganna, þessara gömlu góðu sem allir kunna. Þarna rúlluðum við mótherjum okkar upp, hverrar þjóðar sem þeir voru!

Þessi ferð til Finnlands er einhver sú besta sem ég hef nokkru sinni farið í. Bæði vegna þess að Finnland tók vel á móti okkur með sólskini og hlýju, vegna þess borgirnar Helsinki, Tampere og Lahti eru ósköp ljúfar og viðkunnanlegar og ekki síst vegna þess að stelpurnar okkar fylltu okkur þjóðarstolti á ný. Nokkuð sem verulega hefur skort á undanfarna mánuði.

Eins og gefur að skilja hittum við fjölda marga ferðalanga þá viku sem við dvöldum í Finnlandi. Allir voru hlýlegir í okkar garð og nokkrir höfðu skilning á efnahagsástandi hér á landi og færðu okkur gjafir, sem oftar en ekki voru í fljótandi formi Wink.

Það eina sem gerði ferðina „erfiða“ ef svo má segja var íslenska krónan. Ég hygg að allir þeir sem í mínum hópi voru hafi þarna gert sér endanlega ljóst að gamli góði gjaldmiðillinn okkar hefur runnið sitt skeið. Það verður ekki búið við það til lengdar að greiða 7-8 evrur fyrir staðlaðan hamborgara frá McDonalds, eða 5-8 evrur fyrir glas af bjór eða gosdrykk. Steininn tók þó úr þegar nokkrar í hópnum mínum fengu sér rauðvínsglas og var gert að reiða fram 14 evrur fyrir herlegheitin, samsvarandi 2.500 króna.

Engu að síður var ferðin stórkostleg upplifun, nokkuð sem mun lifa í minningunni um ókomna tíð og stoltið sem fylgir því að vera hluti af svona frábæru og samheldnu fólki er óborganleg. Stelpunum í landsliðinu þakka ég fyrir frábæra leiki. Ferðafélagarnir fá þúsund kossa fyrir ógleymanlega ferð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Það er svo sama króna sem veldur því að nú erum við með betri samkeppnis aðstöðu í útflutning og er að vinna sitt verk. Þar á meðal að halda Finnsku rauðvíni dýru svo að við kaupum það ekki nema á tyllidögum og spörum þess í stað við okkur að eyða gjaldeyri það skiptir nefnilega engu máli hvað hann heitir við getum í raunheimum aldrei eitt meiri gjaldeyri en við öflum án þess að súpa seiðið af því.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 1.9.2009 kl. 21:46

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Ég fékk þjóðrembings heilkenni,þegar ég sá og heyrði stúlkurnar,syngja þjóðsöng okkar. Rauk beint í tölvuna uppnumin;Vildi´að allur heimur heyrði hvað þær sungu listavel;. Gaman að lesa þessa færslu,finnum samkenndina erlendis.               Sætir Finnarnir, bjóða ykkur að súpa seyðið,með sér:-).

Helga Kristjánsdóttir, 1.9.2009 kl. 23:39

3 identicon

Hún lætur ekki hæða af sér íslenska minnimáttarkenndin, komin í bullandi útrás!

Halldór Lárusson (IP-tala skráð) 2.9.2009 kl. 12:13

4 Smámynd: Kristján Þór Gunnarsson

Stelpurnar stóðu sig frábærlega eins og þið.

Þetta mót er gott veganesti í reynslubankann fyrir HM.

Vonandi verður sruðningshópurinn enn fjölmennari á áhorfendapöllunum þá.

Kristján Þór Gunnarsson, 2.9.2009 kl. 19:40

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Já á fullt að undir búa H.M. 

Helga Kristjánsdóttir, 3.9.2009 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband