Leita í fréttum mbl.is

Botlaus ósvífni í bland við forherðingu

Í gær skrifaði Jón Baldvin Hannibalsson, fv. utanríkisráðherra, einkar athyglisverða grein í Morgunblaðið. Fór hann þar mikinn um ábyrgð stjórnenda Landsbankans á bankahruninu og þá sérstaklega ábyrgð Kjartans Gunnarssonar, fv. framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins og varaformanns bankaráðs Landsbankans.  Hafir þú ekki þegar lesið greinin þá hvet ég þig til að gera það nú þegar því Jóni Baldvin er í lófa lagið að segja hlutina eins og þeir eru og þannig að þeir verði auðskiljanlegir.

Eins og flestum er kunnugt skrifaði Kjartan bréf í Morgunblaðið fyrir nokkrum dögum, bréf sem maður hefði getað haldið að væri fullt af iðrun, eftirsjá og beiðni um fyrirgefningu. En nei, slíkt á ekki uppá pallborðið hjá Kjartani. Nú er bruninn slökkviliðsmönnunum að kenna, ruslið kemur frá öskukörlunum og bankahrunið er þjóðinni að kenna. Kjartan sér sannarlega ekki bjálkann í eigin auga í þessari grein.  

En Jón Baldvin sér bjálkann og hann segir m.a.: "Getur þetta verið? Hefur mér ekki missýnst? Ég trúi ekki mínum eigin augum. Að á sama tíma og menn leggja nótt við nýtan dag til að moka skuldirnar og skítinn upp eftir greinarhöfund, Kjartan Gunnarsson, pólitíska fóstbræður hans og viðskiptafélaga, þá þyki honum sæma að gera hróp að björgunarliðinu. Hvað kallast svona hegðun? Hroki og óbilgirni? Vissulega. Botnlaus ósvífni væri nær lagi. Ósvífni í bland við forherðingu kemst líklega næst kjarna"

Í gærkvöldi var síðan Hreiðar Már Sigurðarson, fv. bankastjóri Kaupþings, í viðtali í Kastljósi. Þar reyndi hann að hvítþvo sjálfan sig af allri sök. Jú, hann hefði mátt halda öðruvísi á hlutum gagnvart starfsmönnum bankans sem stóðu sig frábærlega. Þeir voru beðnir afsökunar á stjórn bankans en Hreiðari datt ekki í hug að hann skuldaði þjóðinni nokkuð. Og til að bíta höfuðið af skömminni þá sagði Hreiðar Már að hann væri ekki ríkur maður. Tja, ef ég hefði 100 milljónir í laun á ári eða meira í nokkur ár, þá myndi ég klárlega líta á sjálfa mig sem ríka konu. Jafnvel þó ég hafi ekki fjárfest í hlutafélögum í nokkur ár, en það var nokkuð sem Hreiðar "fórnaði" þar sem hann hafði næga fjármuni milli handanna fyrir sína 9-4 vinnu. Svo ætlaðist hann til þess að fá samúð frá áhorfendum. Er drengurinn ekki að grínast?

Skömmina af höfðinu bitu síðan stjórnendur Straums sem buðust til þess að bjarga sem mestu úr brunarústum bankans fyrir ofurbónusa, milljarðar og ekkert minna var í boðinu gagnvart eigendum bankans. Var einhver sem hlustaði á þetta boð? Var einhverjum sem datt í hug að kannski væri þetta ekki galið boð? Er það nokkuð sama fólkið og settu aðra banka á höfuðið og íslensku þjóðina með?

Ég bara spyr!

 

2009-08-19 Jon Baldvin

Ég held að það sé hægt að smella á myndina og hún birtist stærri!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 ´Þeir stangast,gömlu stjórnmálarefirnir. Ég hef hvorugt lesið,næ innihaldinu meö því að lesa ath.semdir hjá öðrum.  Veit ekki hvernig stendur á að við látum stórþjóðir kúga okkur. Skuldbindingar skal standa við,en þetta, guð minn góður við Íslendingar mestir og bestir(miðað við höfðatölu). Ég mótmæli.

Helga Kristjánsdóttir, 20.8.2009 kl. 23:31

2 identicon

Sammála þér hverju einasta orði.Það er furðulegt að þessi afæta á íslensku þjóðinni skuli voga sér að skrifa svona grein,en við hverju má búast af svona froðuhaus eins og glæpaspírunni Kjartani Gunnarsyni.

magnús steinar (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 12:24

3 identicon

Þetta sýnir betur en nokkuð annað að glæpahyskið sem setti íslensku þjóðina á hausinn er ekki í neinum tengslum við raunveruleikann. Þeir eru hreinlega svo siðlausir að þeir trúa því statt og stöðugt að þetta sé bara alls ekkert þeim að kenna. Enda er ég komin á þá skoðun að ég vilji ekki neina afsökunarbeiðni frá þessum glæpamönnum ég ,börnin mín og barnabörnin munum engu að síður fá reikninginn fyrir sukkinu. Ég vil þess í stað stjórnarskrábreytingu þar sem leyfilegt verði að taka af mönnum ríkisborgararétt. Því næst svipta glæpagengið íslenska ríkisborgararéttinum og reka það af landi brott með ævilangt endurkomubann. Aðeins þá er mögulegt að ég geti sætt mig við það að borga skuldirnar eftir græðgivæðinguna.

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 14:41

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Hvað með málsháttin um glerhúsið er Jón alveg hvítþveginn sakleysingi í sovona spillingar málum ???????????????

Jón Aðalsteinn Jónsson, 21.8.2009 kl. 15:17

5 identicon

Magnað að stjórnendur Straums skuli ekki vera búnir að fá uppsagnarbréf??.  Klárlega ekki aðilar með vit í kollinum!!!

itg (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 17:21

6 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Jón Aðalsteinn, ég segi hvergi að Jón Baldvin sé "hvítþveginn sakleysingi" - hann er hins vegar ákaflega orðfær maður og ég hef oftar en ekki verið sammála honum í ansi mörgum málum. Það á sannarlega við í þessu máli.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 21.8.2009 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 129408

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband