Leita í fréttum mbl.is

Bloggheimar munu sjálfsagt loga

Rétt eins og bróđurpartur ţjóđarinnar hef ég beđiđ undanfarna daga, spennt yfir ţví hvernig ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grćnna muni líta út. Mér heyrist á fréttum og samferđarfólki ađ almenn ánćgja sé međ ađ Jóhanna Sigurđardóttir taki viđ embćtti forsćtisráđherra. Hún er einn stađfastasti stjórnmálamađur Íslands, fylgin sér, ákveđin, dugleg, kraftmikil og ţađ sem mestu skiptir, hún hefur nćma sýn á velferđ ţeirra sem minnst mega sín.

Ţađ vćri spennandi ađ spá í spilin um hvađa persóna fari í hvađa ráđuneyti fyrir sig en ţađ eina sem telja má ljóst er ađ Jóhanna verđur forsćtisráđherra. Annađ virđist óljóst, flestir virđast ţó á ţeirri skođun ađ Ingibjörg Sólrún verđi utanríkisráđherra áfram og ađ Steingrímur J. fari í fjármálaráđuneytiđ. Ćtli ţađ sé ekki í lagi ađ spá ţví ađ ţetta ţrennt gangi eftir en algjörlega óvíst er međ önnur ráđherraembćtti. Reyndar held ég ađ ţađ muni ekki skipta neinu hver verđur hvar ţegar upp er stađiđ, bloggheimar munu sjálfsagt loga međ eđa móti ţeirri ákvörđun sem tekin verđur.

Mig langar til ađ tjá mig um ákvörđun sjávarútvegsráđherra um ţađ ađ leyfa hvalveiđar, en ég held ég sleppi ţví, nema ađ mér finnst ákvörđunin í meira lagi undarleg.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Ţór Gunnarsson

Sammála ţví ađ ţađ verđur fínt ađ fá Jóhönnu Sigurđardóttur í forsćtisráđherrastólinn. Ţađ sem ég persónulega bíđ spenntastur eftir er hvađa ráđuneyti Ögmundur Jónasson fćr.

Hann er búinn ađ vera á móti öllu í áratugi og ţađ verđur virkilega skemmtileg tilbreyting ađ heyra hann verja eigin ákvarđanir :-)

Spennandi tímar framundan :-)

Kristján Ţór Gunnarsson, 28.1.2009 kl. 20:29

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Vid skulum samt gefa tví fólki sem velst í embćttin tíma og ró.Ég óska teim alls hins besta í starfi og kominn tími á frid í landinu .Tó veit ég ad margar óvinsćlar ákvardanir eigi eftir ad verda teknar tad er heldur ekki audvelt ad taka vid og hreinsa  upp úr tessari skítugu kistu.

Knús og kreistur til tín.

Gudrún Hauksdótttir, 29.1.2009 kl. 09:16

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 129408

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband