Leita í fréttum mbl.is

Ljósin kveikt á jólatréinu

Ljósin voru kveikt á jólatrénu á heimili mínu að viðstöddu fámenni. Það hefur verið hefðbundið hjá mér undanfarin ár að skreyta fyrir 3. desember ár hvert. Ástæðan er einfaldlega sú að gestir sem líta til mín að kveldi þess 3. hafa gjarnan óskað þess að jólin séu komin á heimilið.

Það er ekki í mínum anda að valda þeim vonbrigðum.

Á meðan á skreytingu jólatrésins og ákveikju stóð þá var leikinn nýr geisladiskur með Ragnheiði Gröndal sem ég fékk í snemmbúna afmælisgjöf frá Binnu systur minni og hennar fjölskyldu. Það var ánægjulegt að hlusta á Ragnheiði, snilldarsöngkona þar á ferð. Mér finnst samt að henni hafi fyrr tekist betur upp en á þessum geisladiski. Góður engu að síður og verður sjálfsagt nokkuð í spilaranum.

Vegna viðburðarins sem fagnað hefur verið ár hvert frá 3. desember 1963 verður opið hús fyrir þá sem vilja skoða jólaskreytingarnar frá því ég kem heim úr vinnu uppúr kl. 16.00. Þeir sem ekki eiga heimangengt er heimilt að skilja eftir kveðju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú átt sama afmælisdag og mamma mín.  Hún verður áttræð.

Til hamingju með daginn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.11.2008 kl. 21:36

2 Smámynd: Guðrún S Hilmisdóttir

Bestu kveðjur og hamingjuóskir með afmælið -

Guðrún S Hilmisdóttir, 30.11.2008 kl. 21:46

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

nú! Ert þetta yngri en Jónína,hjartans hamingjuóskir.

Helga Kristjánsdóttir, 1.12.2008 kl. 01:36

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Kærar þakkir fyrir kveðjurnar, góðu konur ... þetta verður þó ekki fyrr en 3. des. og ég geri ráð fyrir að Jenný hafi þetta rétt. Ég sé það núna hvaðan þú hefur húmorinn!!

ps. Kannski þarf ég að endurtaka færsluna þá ef mér verður mikið mál að blogga í millitíðinni.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 1.12.2008 kl. 07:59

5 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Reikna með því að sé gamla stærðfræðin mín rétt þá verðir þú Ingibj. 45 ára. Til hamingju með það og eins og ég víst hef áður sagt segi ég við þig aftur. Áfram HK. Totinn  

Þórarinn M Friðgeirsson, 1.12.2008 kl. 13:22

6 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sælir herramenn og þakkir fyrir snemmbúnar og góðar kveðjur.

Þórarinn þú ert mikill stærðfræðingur og endilega haltu áfram að halda með HK, það geri ég miskunnarlaust nema þegar þeir mæta Blikum.

Félagi Ægir, tréð mitt er tæpur metri á hæð úr ekta plastefni. Það er fagurgrænt, skreytt með silfurlituðum kúlum, ljósum og nokkrum notalegum minningum. Mæl þú manna heilastur um framgang jafnaðarstefnunnar og ekki síður um siðferðið, þar er verk að vinna!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 2.12.2008 kl. 08:27

7 identicon

Til hamingju með daginn!  Ég mátti til að senda þér kveðju fyrst ég mundi eftir þessu og fann þig á netinu.

Sigríður María Torfadóttir (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 15:52

8 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Ja hérna, mér þykir þú minnisgóð mín kæra Sigga Maja!  Mikið varð mér hugsað til þín um daginn þegar það var órói fyrir utan vinnustaðinn þinn! Takk fyrir kveðjuna

Ingibjörg Hinriksdóttir, 3.12.2008 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 129408

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband