Leita í fréttum mbl.is

Reikisamningar milli símafyrirtækja

Um helgina lá leið mín vestur í Stykkishólm, er sú ferð í sjálfu sér ekki í frásögur færandi ef ekki væri vegna þessarar fréttar um útbreiðslu gsm-senda frá Vodafone. Þegar ég var komin langleiðina yfir nýju Vatnaleiðina á leiðinni vestur þá datt síminn minn út. Systir mín sem var með mér í bílnum er með númer frá Símanum og hennar sími var inni allan tímann.

Vodafone síminn minn kom ekki almennilega inn aftur fyrr en ég var komin langleiðina út á Þórsnes og inn í Stykkishólmsbæ. Þetta er að mínu mati ekki góð þjónusta og í raun algjörlega fáránlegt að  símafyrirtækin skuli ekki vera með reikisamning sín á milli þar sem Vodafone getur notað dreifikerfi Símans og öfugt þegar þannig stendur á.

 


mbl.is Nýir gsm sendar settir upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir reikisamningar sem gerðir voru fyrir mörgum árum síðan tóku aðeins til þeirra senda sem voru komnir upp þegar samningar voru gerðir. Þeir sendar sem settir hafa verið upp síðan þá eru ekki innan reikisamninga og því ekki aðgengilegir fyrir önnur Símafyrirtæki.

Þetta er bara eðlileg samkeppni... 

Snorri (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 00:46

2 identicon

Síminn er ekki með neina reikisamninga við vodafone í sambandi við nýju gsm sendana, þeir eru aftur á móti að reyna að semja um það

Olafur jakobsson (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 02:06

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hvað með "grunnnetið" ?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 28.4.2008 kl. 12:17

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Já hvað með grunnnetið?

Ég ætla ekki að stoppa umferð neinsstaðar eða ganga um með mótmælaspjald, en mér finnst þetta illa farið með fjármuni að þessi símafyrirtæki skuli ekki nýta tæknina og tækin betur en raun ber vitni. Símareikningar eru hjá mörgum stjarnfræðilegir og það er með ólíkindum að fyrirtækin skuli ekki sjá sér hag í því að vinna saman að dreifikerfinu. Var ekki frétt um það fyrr í vor að annað fyrirtækið hefði sett upp sendi á einum stað og svo hafi hitt fyrirtækið komið og sett upp annan sendi á sama stað!  Þetta er fáránlegt og ég ítreka að mér finnst þarna illa farið með fjármuni.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 28.4.2008 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband