Leita í fréttum mbl.is

Hroki eđa karlremba?

Oftast nćr reyni ég á horfa á Silfur Egils eftir hádegisfréttir á sunnudögum. Ef ég missi af ţćttinum kíki ég á hann á netinu og sortera ţá út ţađ sem mig langar ađ hlusta á - sá kostur verđur ć oftar fyrir valinu. Á sunnudag horfđi ég hins vegar á ţáttinn međ nokkurri athygli og áhuga enda margt ađ rćđa á vettvangi íslenskra efnahagsmála. Í upphafi ţáttarins voru mćtt í stúdíó til Egils nokkrir mćtir menn, Gunnar Smári Egilsson, Jón Magnússon, Jón Steindór Valdimarsson og Edda Rós Karlsdóttir.

Umrćđurnar voru athyglisverđar ţó ekki hafi allir ţeir sem sátu viđ borđiđ veriđ sammála um greiningu á efnahagsástandinu. Einn ţátttakandanna fannst mér tala öđrum fremur af mikilli skynsemi og yfirvegun um efnahagsástandiđ, en ţađ var Edda Rós Karlsdóttir. Hún setti skođanir sínar fram á yfirvegađan hátt og greinilegt er ađ ţarna fer kona sem hefur greinargóđa ţekkingu á efnahagsástandinu. Mér fannst hún tala af varúđ um ástandiđ og fćrđi hún góđ rök fyrir máli sínu. Kannski hefur innlegg hennar skyggt eitthvađ á ţá sem voru međ henni í ţćttinum ţví ţrír af fjórum ţeirra ágćtu karla sem sátu međ henni til borđs voru ósparir á ađ grípa frammí fyrir henni og koma sínum ljómandi hugmyndum á framfćri. Aldrei varđ ég ţess vör ađ Edda Rós gripi frammí fyrir ţeim, enda ber slíkt ekki vott um góđa mannasiđi. 

Ţegar leiđ á ţáttinn óskađi Edda Rós ţess ađ ţađ yrđi talađ af ákveđinni virđingu um krónuna. Ţessi beiđni hennar fór öfugt ofan í alţingismanninn Jón Magnússon sem hreytti í Eddu Rós ađ flokksformađur hennar hafi sagt krónuna vera ónýtan gjaldmiđil. Ég fékk ekki betur séđ en Eddu brygđi viđ ţessar hreytur enda var hún í ţćttinum sem forstöđumađur Greiningardeildar Landsbankans en ekki annađ.

Persónulega hef ég ekki hugmynd um hvar í flokki Edda Rós stendur, enda finnst mér ţađ ekki koma málinu viđ. Ég veit hverra manna hún er og ég veit hver eiginmađur hennar er, og ţykist meira ađ segja vita hvar í flokki hann stendur, en aldrei hef ég innt Eddu Rós eftir ţví hvar hún standi í pólitík, enda varđar mig ekki um ţađ. Hún er hins vegar einn virtasti bankamađur landsins og hefur yfir ađ búa mikilli ţekkingu á efnahagsástandi hinnar íslensku ţjóđar. Miđađ viđ ástandiđ eins og ţađ er í dag ţurfum viđ á slíku fólki ađ halda og Jón Magnússon setti beinlínis niđur viđ hreytur sínar í garđ Eddu Rósar Karlsdóttur í ţćttinum Silfri Egils á sunnudag.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband