Leita í fréttum mbl.is

Snjókoma og döpur úrslit

Þá er maður komin aftur úr Baunaríki, Danmörku, þar sem ég hef verið í snjókomu og kulda síðustu viku. Stúlknalandslið Íslands skipað leikmönnum yngri en 17 ára öttu þar kappi við stöllur sínar frá Danmörku, Rússlandi og Finnlandi. Þrátt fyrir að stelpurnar mínar hafi verið markahæsta lið mótsins, skoruðu 7 mörk í 3 leikjum, þá voru þær líka það lið sem fékk flest mörk á sig og töpuðu þær öllum leikjum sínum.

Heilt yfir er ég ánægð með ferðina, leikmennirnir, sem ég var að kynnast flestum í fyrsta sinn, eru upp til hópa kurteisar, dugmiklar og ákveðnar stúlkur sem eiga framtíðina fyrir sér í fótboltanum. En eftir að hafa verið í þetta mörg ár með kvennaliðum Íslands þá er eitthvað sem hvíslar í hnakkanum á mér um að ungir leikmenn í dag búi ekki yfir nægilegum aga og skipulagi og ungir leikmenn fyrir nokkrum árum síðan. Það má vel vera að þetta sé bara tilfinning hjá mér sem eigi sér enga stoð, og ég vona það raunar, en sumir leikmenn brotnuðu niður við minnsta mótlæti á meðan aðrir stóðu keikir og ákveðnir í að berjast fyrir sínu sæti í liðinu.

Það var meira en slæleg úrslit sem hrekktu íslenska liðið á mótinu. Vetur konungur ákvað að líta til Danmerkur einmitt á meðan við vorum þar og varð að fresta tveimur leikjum í mótinu um einn dag vegna snjókomu. Eins og sjá má á meðfylgjandi tengli þá varð ekki hjá því komist að fresta leikjum en myndirnar sem eru á tenglinum sýna ástandið fyrir fyrsta leik mótsins (sem fór fram á réttum tíma), en eftir þetta hélt áfram að snjóa og varð frestun ekki umflúin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Velkomin heim Ingibjörg!  Já, það er víða talað um agaleysi í boltaíþróttinni. Hvað er það sem veldur?  Getur verið að stúlkurnar fái ekki sömu hvatningu frá foreldrum og KSÍ og strákarnir?  Það er full þörf á að ræða þetta af hreinskilni.  Til að byggja upp og styrkja sjálfstraustið hjá stelpunum.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:56

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæl Lilja, ég hef frekar tilfinningu fyrir því að agaleysi sé almennt í samfélaginu heldur en eingöngu í boltagreinum þó ég hafi rætt um það grein minni um ferð U17 til Danmerkur. Stundum skaut því í huga minn að sumir leikmenn væru algjörlega sjálfala og fengju það heiman frá sér sem þeir vildu, þegar þeir vildu - engra spurninga spurt!

Ég tek undir að það er full þörf á hreinskilinni umræðu um agaleysi í samfélaginu. Við sjáum það líka í þeirri vanvirðu sem hlutum eru sýndir, s.s. með veggjakroti og slæmri umgengni á almannafæri. Hitt er svo annað að mín upplifun hefur verið sú að ungt fólk vill fá ramma, það vill fá aga en það er einfaldlega í eðli þeirra að athuga hversu langt þau geta gengið, að athuga hvar mörkin eru dregin. Það er hlutverk okkar fullorðinna að draga mörkin, veita agann og leiðbeina ungu fólki. Við megum ekki slaka á - framtíðin liggur við!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 1.4.2008 kl. 09:37

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég er alveg fullkomlega sammála þér, kunni bara ekki við að segja það  hér fyrir ofan.  En agaleysi í samfélaginu öllu er yfirgengilegt, eins og þú nefnir dæmi um.  - Og ég er líka alveg sammála því, að ungt fólk vill aga, og við eigum að bera ábyrgð, og sníða rammann, og sýna unga fólkinu þá ást og virðingu, sem kennir þeim halda sig innan þeirra marka sem ramminn gefur, svo þau haldi lífi. - Þá líður þeim vel, því þá vita þau, hvar þau standa, hvað þau mega, og hversvegna þau mega ekki. - Nei, við megum ekki slaka á, gefa eftir hnignuninni, því líf þessara barna liggur við.  Ég er sammála þér, þetta er alvarlegt ástand. Takk fyrir þennan pistil Ingibjörg, þetta eru sko, orð í tíma töluð. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.4.2008 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband