Leita í fréttum mbl.is

Megas stórkostlegur

Ţó margar af mínum nánustu vinum eigi erfitt međ ađ trúa ţví ţá held ég mikiđ uppá Magnús Ţór Jónsson, Megas. Textasmíđi hans er algjörlega einstök í íslenskri menningarsögu og oftar en ekki hittir hann naglann á höfuđiđ eđa stingur á mestu meinsemdir samfélagsins í textum sínum.

Í sumar kom út platan „Frágangur“ ţar sem Megas stígur á stokk međ mögnuđum hljóđfćraleikurum sem kalla sig Senuţjófana. Senuţjófarnir tróđu upp međ Megasi á tónleikum á laugardagskvöld og betri tónleika hef ég ekki fariđ á um ćvina. Meistari Megas steig hvorki feilnótu né feilspor en ţó voru senuţjófar kvöldsins, hljóđfćraleikararnir í Senuţjófunum. Ţvílíkir meistarar ... ţađ munađi minnstu ađ meistarinn sjálfur stćđi í skugganum af ţeim, ég stóđ mig a.m.k. ítrekađ ađ ţví ađ horfa međ mikilli ađdáun á Nils Törnqvist trommuleikara og Guđmund Pétursson gítarleikara sem fóru hreinlega á kostum í höllinni.

En ţó ţeir hafi skyggt á Megast um stund ţá sló meistarinn hvergi af. Í rúma 2 klukkutíma söng hann af krafti og innlifun eins og honum einum er lagiđ, hver perlan á fćtur annari leit dagsins ljós og ég iđađi í sćti mínu, efst í stúkunni á Laugardalshöllinni. Ţađ er erfitt ađ sitja kyrr undir svona frábćrum lögum. Hámarki náđu tónleikarnir ađ mínu mati ţegar Megas flutti eitt fallegasta ástarljóđ íslenskrar tónlistarsögu, Tvćr stjörnur. Ţvílík snilld, ţvílík innlifun, ţvílíkur munađur ađ hafa orđiđ ţess ađnjótandi ađ fá ţetta meistarastykki beint í ćđ. Og sviđsmyndin ţegar lagiđ var flutt, mađur minn ... „stórkostleg“ er eina orđiđ sem dugar.

Megasi og Senuţjófunum ţakka ég fyrir frábćra kvöldstund og Sigrún systir fćr líka ţakkir fyrir ţolinmćđina og fórnfýsina ađ ţrauka ţessa tónleika međ mér (henni finnst Megas ekki skemmtilegur en hún dáđist ađ ţví ađ meistarinn fékk sér ekki einu sinni vatnssopa ţann tíma sem hann stóđ á sviđinu).


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband