Leita í fréttum mbl.is

Hjartanlega sammála

Undanfarin ár höfum við Víðir Sigurðsson ekki deilt skoðunum um það hvort fækka beri liðum í efstu deild í knattspyrnu. Víðir hefur skrifað margar lærðar greinar um málið undanfarin ár, bæði í blöð og ekki síður í bók sína Íslensk knattspyrna. Minn málflutningur hefur aftur á móti farið meira fram á meðal manna sem hafa áhuga á framgangi íslenskrar kvennaknattspyrnu, auk þess sem ég hef nokkrum sinnum lýst þeirri skoðun minni á ársþingi KSÍ að það beri ekki að fækka liðum í efstu deild.

Vissulega hef ég efast og á stundum hallast að því að réttast væri að fækka í deildinni en þegar ég hef lagst yfir málið hef ég ávallt komist að þeirri niðurstöðu að það væri ekki rétt. Hef ég haldið í vonina um að félögin í efstu deild styrki sig hóflega með erlendum leikmönnum, vandi til verka í yngri flokkum og setji meiri metnað í það starf sem unnið er meðal kvennaflokkanna. Þannig muni liðin styrkjast og eflast og þá mun koma að því einn góðan veðurdag að lið eins og Valur, KR og Breiðablik munu mæta jafnokum sínum á vellinum.

Undanfarin ár hafa lið eins og Keflavík, Fjölnir og Fylkir lagt mikla áherslu á yngriflokka starf sitt í kvennaflokkunum. Það er að skila þeim núna. Ég held að það sé ekki á neinn hallað þó ég nefni Fjölni sérstaklega, líkt og Víðir gerði í grein sinni í Morgunblaðinu í dag. Þar hefur verið unnið af miklum metnaði í yngri flokkunum og stelpunum hefur verið sinnt af mikilli samviskusemi og dugnaði. Fjölnir er að uppskera eins og til var sáð. Liðið er í 5. sæti Landsbankadeildarinnar og hefur fyrir löngu tryggt sæti sitt í deildinni á næsta ári. Af þeim 16 leikmönnum sem tekið hafa þátt í leikjum liðsins í Landsbankadeildinni í sumar eru 12 leikmenn uppaldir hjá félaginu, tveir leikmenn koma erlendis frá og tveir leikmenn eru uppaldir í öðru félagi hér heima. Þetta er frábær árangur og sýnir svo ekki verður um villst að öflugt uppeldisstarf heima fyrir er vænlegt til árangurs.

Vissulega má líka fara aðrar leiðir og sanka að sér öflugum og efnilegum leikmönnum frá öðrum félögum, slíkt tel ég ekki vænlegt til langtíma árangurs. En framfarir í kvennaboltanum hér heima hafa verið miklar á undanförnum árum. Miklu fleiri hafa fengist til starfa innan kvennaflokkanna en áður og stuðningur við stelpurnar hefur aukist jafnt og þétt, á það ekki síst við um stuðning ýmissa fyrirtækja sem hafa í auknum mæli séð þann ávinning sem af því hlýst að tengja nafn fyrirtækisins við öfluga uppbyggingu kvennaknattspyrnunnar.

Fyrir nokkrum árum, sennilega einum 7-8 árum, spáði ég því að Ísland myndi taka þátt í úrslitakeppni Evrópumóts kvennalandsliða. Fáir tóku undir þá spádóma mína á þeim tíma en nú er lag fyrir íslenska kvennalandsliðið að trygja sér farmiðann til Finnlands 2009. Eins og Víðir bendir á í grein sinni þá hefur árangur Íslands í Evrópukeppni félagsliða undanfarin ár verið hreint magnaður. Breiðablik og Valur hafa bæði komist í 8 liða úrslit keppninnar og ég hef fulla trú á því að Valsstúlkur muni endurtaka leikinn nú í haust. Til þess hafa þær leikmannahóp sem býr yfir þeim styrk og vilja sem þarf til að ná árangri.

Sumir myndu nú ekki trúa því að ég segði þetta en ég læt mig hafa það að segja; Áfram Valur, Áfram Ísland og áfram stelpur!  Já og að sjálfsögðu Áfram Breiðablik! Smile


mbl.is Ísland á að vera með eina sterkustu deild í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband