Leita í fréttum mbl.is

Magnaður fundur í Salnum

Í gærkvöldi efndu samtökin Betri byggð á Kársnesi til opins fundar um skipulagsmál á Kársnesi. Á fundinum voru flutt nokkur erindi, m.a. frá Örnu Harðardóttur, formanni BBK, og Gunnari Birgissyni bæjarstjóra.  Salurinn var þéttsetinn og var hljóði og mynd frá fundinum varpað fram í anddyri á meðan á honum stóð.

Skemmst er frá því að segja að stemmingin á fundinum var mögnuð. Gríðarlegur einhugur var meðal fundarmanna og í fyrirspurnum í lok fundarins kom glögglega í ljós að íbúum Vesturbæjar Kópavogs er ákaflega mikið niðri fyrir vegna þeirra skipulagshugmynda sem nú liggja frammi.

Fundurinn var að mestu málefnalegur og var framsaga forsvarsmanna BBK í upphafi fundarins ákaflega vel undirbúin en það sama verður þó ekki sagt um þá sem voru til svara fyrir hönd bæjarins, bæjarstjórann og skipulagsstjórann. Það má undrun sæta að þeir skuli ekki hafa komið betur undirbúnir til fundarins, efni hans lá fyrir og það getur hreinlega ekki velkst fyrir þeim hvaða málflutningur kæmi fram á fundinum af hálfu BBK.

Undir lok fundarins var borin upp áskorun á bæjaryfirvöld þess efnis að þau falli frá áformum sínum um skipulagsbreytingar á Kársnesi. Einnig er þess krafist að nýjar hugmyndir um landnýtingu á Kársnesi verði ekki lagðar fram nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Í áskoruninni er mestur þungi lagður á að fallið verði frá hafnsækinni starfsemi á nesinu og að horfið verði frá áformum um stórskipahöfn. Þetta er í fullkomnum takti við málflutning Samfylkingarinnar í bæjarstjórn sem hefur ítrekað og sífellt bent á að ekki sé ásættanlegt að ráðast í frekari framkvæmdir við uppskipunarhöfn, slíkt sé tímaskekkja og slíkri starfsemi væri betur borgið í höfnum sem þegar eru til og eiga greiðari leið með varning til og frá höfninni.

Auk þess sem fulltrúar Samfylkingarinnar hafa fjallað ítarlega um málið á bæjarstjórnarfundum hef ég ítrekað fjallað um höfnina hér á heimasíðunni og bendi á að neðst í grein um aukabæjarstjórnarfund sem haldinn var á dögunum hef ég tekið saman nokkrar greinar sem ég hef ritað hér á vefinn. Að auki má benda á bókanir sem fulltrúar Samfylkingarinnar hafa lagt fram hvenær sem málið hefur komið á borð skipulagsnefndar, bæjarráðs og bæjarstjórnar þar sem áformum þeim um breytt skipulag á Kársnesi sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur boðað er mótmælt.

Það er því ekki rétt sem fram kom undir lok fundarins að minnihlutinn stæði aðgerðarlaus hjá meðan meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks kæmu óvinsælum skipulagshugmyndum í framkvæmd. Fulltrúar Samfylkingar í bæjarstjórn hafa staðið í fæturnar í þessu máli og beitt öllum þeim ráðum sem tiltæk eru til að mótmæla þeim gerræðislegu vinnubrögðum sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks beitir í þessu máli og það munum við gera áfram, það liggur algjörlega ljóst fyrir.

Ég óska samtökunum um betri byggð á Kársnesi farsældar í störfum sínum og ég er þess fullviss að sú órofa samstaða sem er um málið meðal íbúa mun færa þeim farsæla lausn á málinu.

Bókanir Samfylkingar vegna breytts skipulags á Kársnesi (aðeins lítið brot þeirra er komið inná síðuna, ég er að safna þeim saman)

Áskorunin í heild sinni.

Fundurinn skorar á bæjaryfirvöld í Kópavogi að falla frá áformum um:

  1. stækkun Kópavogshafnar og nýtingu hennar í atvinnuskyni
  2. gerð landfyllingar 
  3. aukningu atvinnuhúsnæðis og hafnsækna starfsemi á hafnarsvæði
  4. frekari íbúafjölgun á Kársnesi

Nýjar hugmyndir varðandi landnýtingu á vestanverðu Kársnesi verði ekki lagðar fram nema:

  • að fyrir liggi nákvæm útfærsla á lausnum í umferðarmálum
  • að tryggt sé að hljóðvist og svifryksmengun sé í samræmi við ítrustu kröfur um heilsuvernd
  • að gerðar verði mælingar á núverandi ástandi og vandað mat á umhverfisáhrifum
  • að kannaður verði vilji íbúa varðandi framtíðarskipulag á Kársnesi
  • að sett verði fram heildrænt skipulag með hagsmuni íbúa að leiðarljósi

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband