Leita í fréttum mbl.is

Hvernig er hægt að fá þessa niðurstöðu?

Hvernig getur stjórnmálafræðingurinn Stefanía Óskarsdóttir komist að þessari niðurstöðu? Jú kannski vegna þess að hún er ekki aðeins stjórnmálafræðingur heldur einnig fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður einhvers kvennaklúbbs innan flokksins! Þá er nú aldeilis þægilegt að segja að þessi fáránlega niðurstaða Alþingis sé þægileg fyrir Samfylkinguna.

Raunin er hins vegar allt önnur. Niðurstaðan er hræðileg fyrir Samfylkinguna. Flokkurinn jaðraði við klofning fyrir atkvæðagreiðsluna og ef ekki gerist eitthvað mjög öflugt á næstu dögum og vikum tel ég næsta víst að fjöldaúrsagnir verði úr flokknum og klofningurinn verði raunverulegur og áþreifanlegur.

Ég hef margítrekað þá skoðun mína að Samfylkingin sé flokkur að mínu skapi ekki aðeins vegna þeirrar stefnu sem flokkurinn fylgir heldur einnig vegna þess að þar leyfist manni að hafa sjálfstæða skoðun. Það kom heldur betur á daginn á Alþingi í dag, mörgum flokksfélögum til mismikillar gleði. Sjálf er ég afar ósátt við nokkra þingmenn Samfylkingarinnar, þ.e. þá sem ekki sýndu neina sannfæringu í skoðunum sínum og sveifluðust til í atkvæðagreiðslu sinni eftir því hvaða fv. ráðherra átti í hlut.

Stefanía Óskarsdóttir skal hins vegar ekki gleyma því að fyrrum formaður hennar og átrúnaðargoð, Davíð Oddsson situr nú skælbrosandi í Hádegismóum og það sama gera flokksfélagar hennar fyrrum bankastjórar Kaupþings, Glitnis og Landsbanka. Ætli niðurstaðan sé ekki bara þægileg fyrir Sjálfstæðisflokkinn að öll athyglin beinist að Geir H. Haarde? Kastljósið er þá ekki á þessum flokksfélögum á meðan!


mbl.is Þægileg lausn fyrir Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

Ekki nóg með upptalningu þína á tengslum hennar sjálfrar við Sjallana, þá var faðir hennar Óskar Friðriksson mikill frammámaður í flokknumúm áratugaskeið, svo uppeldið hefir heppnast að hans ósk.

Hamarinn, 28.9.2010 kl. 21:04

2 Smámynd: Ólafur Als

Skömm þess fólks, sem kaus að gefa jáyrði við ákærur á suma fyrrum ráðherrum en öðrum neiyrði, er mikil. Útskýringar þeirra eru aumar - og risið almennt lágt á Alþingi eftir þessa atkvæðagreiðslu. Það vill til að hér er um að ræða samfylkingarþingmenn.

Einnig mætti tala um afstöðu alla vega eins framsóknarþingmanns, sem á sínum tíma var í ráðherraliði ríkisstjórnar Davíðs og Halldórs. Það vafðist ekki fyrir þeim þingmanni að vilja kæra ráðherrana fjóra.

Hvernig sjálfstæðisflokkurinn á að fagna því, að Geir Haarde verði ákærður skil ég ekki - sem stuðningsmaður þess flokks sé ég ekki ágætið í þeim pólitísku ofsóknum sem nú þykja sjálfsögð af mörgum. Það má til sanns vegar færa að nú hafi verið rofin grið og að við taki enn hatrammari umræða á Alþingi - og var nú nóg um.

Ömurleg niðurstaða í alla staði.

Ólafur Als, 29.9.2010 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband