Leita í fréttum mbl.is

Mótmæli við heimili fólks eiga aldrei rétt á sér

Það er ömurlegt hvernig íslenskt þjóðfélag virðist vera að þróast. Það er ekki nóg með að bankamenn og svokallaðir fjármálaspekingar hafi keyrt íslenskt efnahagslíf í þrot í þöglu samþykki og andvaraleysi stjórnmálamanna. Nú réttlæta nokkrir, sem betur fer örfáir, almennir borgarar aðför að heimili fólks með því að þeir hafi verið svona og svona í aðdraganda hrunsins.

Það er kristaltært í mínum huga að heimili fólks er og á að vera griðastaður fjölskyldunnar, hvort heldur sem er heimili Jóa Jóns, Banka Bankamanns eða Ölmu Alþingiskonu. Dóm á að kveða upp af þar til bærum aðilum og við verðum að forðast galdrabrennur að hætti miðalda.

Það er mikilvægt að þær reglur sem hingað til hafa gilt í íslensku samfélagi verði virtar hér eftir. Það á ekki síst við um þá reglu að heimilið sé griðastaður. Þar þarf að draga víglínuna, ef við gefum það eftir - hvert leiðir það okkur?


mbl.is Mótmælt við heimili þingmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er varla hægt að segja að þetta séu mótmæli með einhverjum látum, heldur er þarna um að ræða fólk sem hefur komið sér saman um að afhenda kvörtun og óskað eftir því að hún Steinunn Valdís þarna segi af sér þingmennsku.  

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.4.2010 kl. 00:27

2 identicon

Þá vil ég hérna segja þessum lögreglumönnum er benda aftur og aftur á börnin, að þeim beri einnig að virða friðhelgi heimilisins og einkalífs okkar skuldara algjörlega, og munið að öll mótmæli lögreglu fyrir ínnan og utan heimili fólks, svo og að fara inn á heilimili fólks til þess að henda fólki (skuldurum) út á götu eru bönnuð, þar sem slíkt varðar friðhelgi einkalífsins, auk þess og /eða eins og þið hafið réttilega bent á þá hræðir slíkt börn okkar.  

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.4.2010 kl. 01:43

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Rétt hjá þér og sama á við um glæpalýðinn sem ruddist inn á þingpalla Alþingis og stórslasaði þar þingverði, alsaklaust fólk.

Og öllum ber að virða Stjórnarskrána.

71. gr. Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu."

Þorsteinn Briem, 21.4.2010 kl. 06:26

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það þætti nú harla einkennilegt ef ég gæti búið mjög lengi í íbúð, þar sem ég greiddi ekki húsaleigu eða afborganir af íbúðinni. Það hefur ekkert með friðhelgi heimilisins að gera.

Á öllu Evrópska efnahagssvæðinu eru frjálsir fjármagnsflutningar, undir eðlilegum kringumstæðum.

Sparifjáreigendur, til dæmis unglingar og gamalt fólk, þurfa að fá hér raunvexti af sínum innlánum í bönkum og sparisjóðum. Annars fara þeir með allt sitt sparifé úr landi og íslensk bankastarfsemi legðist af.

Geti fólk ekki greitt afborganir af útlánum sínum í bönkum og sparisjóðum verður það að flytjast í leiguhúsnæði.

Og fólk þarf engan veginn að fara að heimili manna til að afhenda einhver mótmæli.

Þorsteinn Briem, 21.4.2010 kl. 09:03

5 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Þetta fólk er kosið til að þjóna fólki, þegar það svarar engu á vinnustað ..... hvað gerum við þá..... kjósendur. ?????

Þetta glottlið sem situr við kjötkatlana núna er vægt til orða tekið.....ömurlegt. 

Vonlaus stjórn.... sem kennir sig við félagshyggju.

Svei attan.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 21.4.2010 kl. 10:36

6 Smámynd: Steinar Immanúel Sörensson

"Það er mikilvægt að þær reglur sem hingað til hafa gilt í íslensku samfélagi verði virtar hér eftir." Þær reglur sem hafa gilt í íslensku samfélagi hafa leitt okkur í ógöngur, það er ekki fyrr en þessir aðilar sem landinu stjórna setja lög sem banna að gengið verði að heimilum fólks með aðför og valdi að réttlætanlegt sé að fara fram á það að mótmælendur láti ekki í sér heyra þar sem þeir ná til þeirra þ.e. við heimili viðkomandi, friðhelgin skal gilda fyrir alla í öllum tilfellum ekki aðeins elítuna og stjórnmálamenn

Steinar Immanúel Sörensson, 21.4.2010 kl. 16:02

7 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Mótmælendur við heimili Þorgerðar Katrínar en Ófriðarseggir við heimili Steinunnar Valdísar,s.b. fréttir á Visir.is

Ragnar Gunnlaugsson, 21.4.2010 kl. 17:14

8 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Mótmælendur við heimili Þorgerðar Katrínar en Óeirðarseggir við heimili Steinunnar Valdísar s.b. fréttir Vísir.is

Ragnar Gunnlaugsson, 21.4.2010 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 129408

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband